Philippa Ruth Foot (fædd Bosanquet) (3. október 19203. október 2010) var breskur heimspekingur. Hún er þekktust fyrir framlag sitt til siðfræði. Hún var ásamt G.E.M. Anscombe einn af upphafsmönnum nútíma dygðafræði í siðfræði. Líta má á verk hennar sem tilraun til þess að nútímavæða aristótelíska heimspeki; til að sýna að hana megi laga að málefnum samtímans og þar meðað hún sé samkeppnishæf við vinsæla strauma í nútímasiðfræði, svo sem skyldusiðfræði og nytjastefnu.

Philippa Ruth Foot
Persónulegar upplýsingar
Fædd3. október 1920
SvæðiVestræn heimspeki
TímabilHeimspeki 20. aldar,
Heimspeki 21. aldar
Skóli/hefðRökgreiningarheimspeki
Helstu ritverkVirtues and Vices and Other Essays in Moral Philosophy; Natural Goodness
Helstu kenningarVirtues and Vices and Other Essays in Moral Philosophy; Natural Goodness
Helstu viðfangsefnisiðfræði

Foot var fædd og uppalin í Bretlandi. Hún var barnabarn Grovers Cleveland, forseta Bandaríkjanna. Hún hóf feril sinn í heimspeki sem nemandi og síðar kennari við Somerville College, Oxford. Árum saman gegndi Foot stöðu Griffin Professor of Philosophy við Kaliforníuháskóla Los Angeles.

Helstu verk

breyta
  • Virtues and Vices and Other Essays in Moral Philosophy (Berkeley: University of California Press; Oxford: Blackwell, 1978).
  • Natural Goodness (Oxford: Clarendon Press, 2001).
  • Moral Dilemmas: And Other Topics in Moral Philosophy (Oxford: Clarendon Press, 2002).

Heimild

breyta

Tenglar

breyta
   Þessi heimspekigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.